Framundan eru morgunnámskeið hjá Knattspyrnuakademíu Íslands í Fífunni í Kópavogi, um er að ræða námskeið fyrir stráka frá öllum félögum. Undnafarin ár hafa námskeið knattspyrnuakademíunnar verið gífurlega vinsæl og færri komist að en viljað.

22. febrúar – 3. mars – Námskeið fyrir stráka fædda 2000 – 2005

Þjálfun útileikmanna:
Áhersla verður lögð á einstaklingsmiðaða þjálfun þar sem helstu grunnþættir knattspyrnu verða þjálfaðir en þessir þættir skipta miklu máli að þjálfa, meðal atriða sem farið verður í eru spyrnur, móttökur, snúningar og skallar.

Þjálfarar:
Hans Sævarsson, Pétur Pétursson, Andri Fannar Stefánsson, Davíð Ólafsson, Hlynur Eiríksson, Eiður Ben Eiríksson, Oliver Sigurjónsson og Steinar Logi Rúnarsson

Þjálfun markmanna:
Áhersla verður lögð á helstu tækniatriði sem markmenn þurfa að hafa í huga.

Markmannsþjálfari
Guðmundur Hreiðarsson markmannsþjálfari Íslenska landsliðsins, auk þess koma gestaþjálfarar í heimsókn.

Æfingadagar: Mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudagar
Æfingatími: kl: 06.20 – 07.20
Aldur: 2001-2005
Verð: 17.900 kr. með morgunhressingu

Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið

Um er að ræða kjörið tækifæri fyrir efnilega knattspyrnuiðkendur sem vilja bæta sinn leik og ná langt. Verður hópnum skipt bæði eftir aldri og getu til að tryggja að allir fái sem mest út úr námskeiðinu.

Ert þú vinur Knattspyrnuakademíu Íslands á facebook?

Hafðu samband

Endilega sendu okkur línu, við svörum eins fljótt og hægt er.

Not readable? Change text.

Sláðu inn leitarorð og ýttu á Enter