FC Barcelona academían verður með Knattspyrnuskóla á Íslandi næsta sumar líkt og 2016-2023 í samvinnu við Knattspyrnuakademíu Íslands (árið 2021 datt úr vegna Covid19).

Æfingabúðirnar verða fyrir stelpur og stráka á aldrinum 9 – 14 ára. Undanfarin ár hefur aðsókn verið mikil í öllum hópum, oft fljótt fyllast og þar af leiðandi uppselt og biðlistar settir í gang.

Allir leikmenn sem taka þátt í æfingabúðunum FC Barcelona fá Nike æfingasett, fótbolta og viðurkenningarskjal.

Æfingadagar: 17. – 21. júní (búningaafhending 16. júní).
Æfingatímar:
Leikmenn fæddir 2012-2013 (5. flokkur) kl. 9:00-11:00 (mæting kl. 8:45). – uppselt – hægt að skrá á biðlista
Leikmenn fæddir 2010-2011 (4. flokkur) kl. 11:30-13:30 (mæting kl. 11:15). – getum bætt við örfáum leikmönnum
Leikmenn fæddir 2014-2015 (6. flokkur) kl. 14:30-16:30 (mæting kl. 14:15). – uppselt aukanámskeið kl 11.30 fyrir þennan aldurshóp
Staðsetning: Kópavogsvöllur(æfingasvæði Breiðabliks)
Verð: 46.500 kr. (hægt er að skipta greiðslum á þrjá mánuði)
Veittur er 10 % afsláttur ef um systkini er að ræða.

Æfingabúðunum lýkur á föstudeginum með skemmtilegu lokahófi.
Það er ekki sjálfgefið að Barça academían komi til landa eins og Íslands. Mikil eftirspurn er eftir Barça academíunni sem sendir eingöngu þjálfara í æfingabúðirnar sem þjálfa í hinni frægu FC Barcelona academíu. Sjúkraþjálfari er á öllum æfingum ef óhöpp verða og er það hluti af þeim fjölmörgu gæða stöðlum sem FC Barcelona setur í æfingabúðum eins og þessum.

Æfingabúðirnar hafa verið gífurlega vinsælar og reiknað er með að færri komist að en vilja líkt og síðustu ár, þess vegna eru forráðamenn hvattir til að skrá börnin sín sem fyrst.

Hægt er skrá leikmenn í æfingabúðirnar hér

Fótboltakveðja,
FC Barcelona og Knattspyrnuakademía Íslands

Hafðu samband

Endilega sendu okkur línu, við svörum eins fljótt og hægt er.

Not readable? Change text.

Sláðu inn leitarorð og ýttu á Enter