FC Barcelona academían verður með Knattspyrnuskóla á Íslandi næsta sumar líkt og 2016-2022 í samvinnu við Knattspyrnuakademíu Íslands. (árið 2021 datt úr vegna Covid19).

Æfingabúðirnar verða fyrir stelpur og stráka á aldrinum 9 – 14 ára. Undanfarin ár hefur aðsókn verið mikil í öllum hópum, oft fljótt að fyllast og þar af leiðandi uppselt og biðlistar settir í gang.

Allir leikmenn sem taka þátt í æfingabúðunum FC Barcelona fá Nike æfingasett, fótbolta og viðurkenningarskjal.

Æfingadagar: 21. – 25. júní (búningaafhending 20. júní).

Æfingatímar:

Leikmenn fæddir 2011-2012 (5. flokkur) kl. 9:00-11:00 (mæting kl. 8:45).

Leikmenn fæddir 2009-2010 (4. flokkur) kl. 11:30-13:30 (mæting kl. 11:15).

Leikmenn fæddir 2013-2014 (6. flokkur) kl. 14:30-16:30 (mæting kl. 14:15).

Staðsetning: Kópavogsvöllur(æfingasvæði Breiðabliks)

Verð: 44.500 kr. (hægt er að skipta greiðslum á þrjá mánuði)
Veittur er 10 % afsláttur ef um systkini er að ræða.

Æfingabúðunum lýkur seinnipart sunnudags með skemmtilegu lokahófi.

Það er ekki sjálfgefið að Barça academían komi til landa eins og Íslands. Mikil eftirspurn er eftir Barça academíunni sem sendir eingöngu þjálfara í æfingabúðirnar sem þjálfa í hinni frægu FC Barcelona academíu. Sjúkraþjálfari er á öllum æfingum ef óhöpp verða og er það hluti af þeim fjölmörgu gæða stöðlum sem FC Barcelona setur í æfingabúðum eins og þessum.

Æfingabúðirnar hafa verið gífurlega vinsælar og reiknað er með að færri komist að en vilja líkt og síðustu ár, þess vegna eru forráðamenn hvattir til að skrá börnin sín sem fyrst.

Hægt er skrá leikmenn í æfingabúðirnar með því að smella hér

 

Hafðu samband

Endilega sendu okkur línu, við svörum eins fljótt og hægt er.

Not readable? Change text.

Sláðu inn leitarorð og ýttu á Enter