Í annað sinn býður Barcelona í samvinnu við Knattspyrnuakademíu Íslands upp á æfingabúðir hér á Íslandi.

Í fyrra valdi​ FC Barcelona, eitt öflugasta íþróttafélag heims, Ísland til að bjóða eingöngu stúlkum, í fyrsta sinn, upp á æfingabúðir þar sem reyndir þjál​farar félagsins þjálfuðu þátttakendur eftir hinu fræga æfingakerfi ​Barcelona.

Gerður var góður rómur að æfingabúðunum og bæði þátttakendur og foreldrar þeirra lýstu yfir mikilli ánægju.

Nú hefur FC Barcelona, í samvinnu við Knattspyrnuakademíu Íslands, ákveðið að bjóða einnig upp á æfingabúðir fyirr íslenska pilta á aldrinum 10-16 ára.“

Æfingabúðirnar verða á Valsvellinum dagana 18.-22. júní fyrir pilta og 24.-28. júní fyrir stúlkur. Þeim lýkur með hófi þar sem góðir gestir frá Barcelona mæta.​

Æfingatímar:
10-11 ára(f. 2006-2007) – Kl: 09.00-11.00
12-13 ára(f. 2004-2005) – kl: 11.30-13.30
14-16 ára(f. 2001-2003) – kl: 14.30-16.30

Skráning í æfingabúðirnar hefst föstudaginn 28. apríl kl. 10:00. Reiknað er með að færri komist að en vilja og þess vegna eru forráðamenn hvattir til að skrá börnin sín sem fyrst hér á síðunni.

Allir þátttakendur munu fá til eignar Nike æfingasett og fótbolta.

Þátttökugjald: 36.900 kr.

Hafðu samband

Endilega sendu okkur línu, við svörum eins fljótt og hægt er.

Not readable? Change text.

Sláðu inn leitarorð og ýttu á Enter