UPPSELT Í ÖLLUM HÓPUM Í FYRRA

FC Barcelona academían verður með æfingabúðir á Íslandi næsta sumar líkt og síðastliðin 4 ár í samvinnu við Knattspyrnuakademíu Íslands. Æfingabúðirnar verða fyrir börn á aldrinum 9-15 ára stráka og stelpur eins og síðasta sumar en þá var uppselt og biðlistar í öllum hópum.

Allir leikmenn sem taka þátt í æfingabúðunum fá FC Barcelona Nike æfingasett og Nike fótbolta.

Æfingadagar: 15. – 19. Júní (búningaafhending 14. júní)

Æfingatímar:
9-10 ára(6. flokkur) kl. 9-11 (mæting kl. 8:45)
9-10 ára(6. flokkur) kl. 14:30-16:30 (mæting kl. 14:15)
11-12 ára(5. flokkur) kl. 11:30-13:30 (mæting kl. 11:15)
13-15 ára(3.-4. flokkur) kl. 14:30-16:30 (mæting kl. 14:15)

Staðsetning: Kópavogsvöllur

Verð: 39.500 (hægt er að skipta greiðslum á þrjá mánuði)

Æfingabúðunum lýkur með skemmtilegu lokahófi eins og síðustu ár, þar sem þátttakendur fá viðurkenningaskjal.

Það er ekki sjálfgefið að Barça academían komi til landa eins og Íslands fimm ár í röð enda mikil eftirspurn eftir Barça academíunni sem sendir eingöngu þjálfara í æfingabúðirnar sem þjálfa í hinni frægu FC Barcelona academíu. Einnig verður sjúkraþjálfari á öllum æfingum ef óhöpp verða og er það hluti af þeim fjölmörgu gæða stöðlum sem FC Barcelona setur í æfingabúðum eins og þessum.

Æfingabúðirnar hafa verið gífurlega vinsælar og reiknað er með að færri komist að en vilja líkt og síðustu ár, þess vegna eru forráðamenn hvattir til að skrá börnin sín sem fyrst.

Hægt er skrá leikmenn í æfingabúðirnar með því að smella hér

Hafðu samband

Endilega sendu okkur línu, við svörum eins fljótt og hægt er.

Not readable? Change text.

Sláðu inn leitarorð og ýttu á Enter