FC Barcelona academían verður með Knattspyrnuskóla á Íslandi næsta sumar líkt og 2016-2020 í samvinnu við Knattspyrnuakademíu Íslands, ekki var hægt að halda skólann í fyrra vegna Covid19. Æfingabúðirnar verða fyrir börn á aldrinum 9-14 ára stráka og stelpur en uppselt og biðlistar hafa verið í öllum hópum.

Allir leikmenn sem taka þátt í æfingabúðunum fá FC Barcelona Nike æfingasett og fótbolta.

Æfingadagar: 8. – 12. ágúst (búningaafhending 7. ágúst)

Æfingatímar:

Leikmenn fæddir 2010-2011 (5. flokkur) kl. 9:00-11:00 (mæting kl. 8:45) – Uppselt – hægt að skrá á biðlista

Leikmenn fæddir 2008-2009 (4. flokkur) kl. 11:30-13:30 (mæting kl. 11:15)

Leikmenn fæddir 2012-2013 (6. flokkur) kl. 14:30-16:30 (mæting kl. 14:15) – Uppselt – hægt að skrá á biðlista

Staðsetning: Kópavogsvöllur(æfingasvæði Breiðabliks)

Verð: 41.900 (hægt er að skipta greiðslum á þrjá mánuði)

Æfingabúðunum lýkur með skemmtilegu lokahófi, þar sem þátttakendur fá viðurkenningaskjal.

Það er ekki sjálfgefið að Barça academían komi til landa eins og Íslands enda mikil eftirspurn eftir Barça academíunni sem sendir eingöngu þjálfara í æfingabúðirnar sem þjálfa í hinni frægu FC Barcelona academíu. Einnig verður sjúkraþjálfari á öllum æfingum ef óhöpp verða og er það hluti af þeim fjölmörgu gæða stöðlum sem FC Barcelona setur í æfingabúðum eins og þessum.

Æfingabúðirnar hafa verið gífurlega vinsælar og reiknað er með að færri komist að en vilja líkt og síðustu ár, þess vegna eru forráðamenn hvattir til að skrá börnin sín sem fyrst.

Hægt er skrá leikmenn í æfingabúðirnar með því að smella hér

 

Hafðu samband

Endilega sendu okkur línu, við svörum eins fljótt og hægt er.

Not readable? Change text.

Sláðu inn leitarorð og ýttu á Enter