…um leið og sumarfríið byrjar!

Í þriðja sinn býður Futbol Club Barcelona í samvinnu við Knattspyrnuakademíu Íslands upp á fótboltaskóla hér á Íslandi.

Fótboltaskólinn verður á æfingasvæðinu við Kópavogsvöll 8.-12. júní, bæði fyrir pilta og stúlkur, sem þó munu æfa í sitt hvoru lagi. Honum lýkur með hófi þar sem góðir gestir frá Barcelona mæta.

Skráning í fótboltaskólann, sem ætlaður er börnum á aldrinum 10-16 ára, er nú þegar hafin hér á síðunni. Reiknað er með að færri komist að en vilja og þess vegna eru forráðamenn hvattir til að skrá börnin sín sem fyrst.

Allir þátttakendur munu fá til eignar Nike æfingagalla og fótbolta og boðið er upp á systkinaafslátt.

Árið 2016 valdi FCB, eitt öflugasta íþróttafélag heims, Ísland til að bjóða eingöngu stúlkum, í fyrsta sinn, upp á æfingabúðir þar sem reyndir þjálfarar félagsins þjálfuðu þátttakendur eftir hinu fræga æfingakerfi Barça og miðluðu um leið þekkingu sinni til íslenskra þjálfara.

Í fyrra ákvað FC Barcelona, í samvinnu við Knattspyrnuakademíu Íslands, að bjóða einnig upp á æfingar fyrir íslenska pilta á aldrinum 10-16 ára. Gerður var góður rómur að fótboltaskólanum og bæði þátttakendur og foreldrar þeirra lýstu yfir mikilli ánægju.

Æfingatímar:
10-11 ára(f. 2007-2008) – Kl: 09.00-11.00 UPPSELT – BIÐLISTI
10-11 ára(f. 2007-2008) – Kl: 14.30-16.30
12-13 ára(f. 2005-2006) – kl: 11.30-13.30 UPPSELT – BIÐLISTI
14-16 ára(f. 2002-2004) – kl: 14.30-16.30

Verð 36.900 kr.

Ef þið eruð í vandræðum með ganga frá skráningu á skráningasíðunni okkar, sendið þá póst á netfangið: saevar@ru.is

Hafðu samband

Endilega sendu okkur línu, við svörum eins fljótt og hægt er.

Not readable? Change text.

Sláðu inn leitarorð og ýttu á Enter