Núna styttist í Barcelona æfingabúðirnar á Íslandi.

Afhending búninga og bolta – 7. ágúst kl.: 14-16 í Fífunni
Sunnudaginn 7. ágúst verða búningar og boltar afhentir kl.: 14.00-16.00 og hvetjum við fólk til að vera tímanlega, þar sem uppselt er á námskeiðið og fá allir þátttakendur búningana og boltana sína þarna. Þeir sem komast ekki á þessum tíma eru hvattir til að fá einhvern til að sækja búninginn og bolta fyrir sig.

Mikilvægt er að passa vel upp á sinn bolta á meðan námskeiðið stendur og mæta með hann á allar æfingar. Eins er mikilvægt að iðkendur mæti í Barcelona æfingafatnaðinum á allar æfingar (leyfilegt er að vera í peysum eða buxum innanundir æfingafatnaðinum en ekki utanyfir).

Æfingatímar
Æfingarnar fara fram 8. – 12. ágúst á æfingasvæði Breiðabliks við Kópavogsvöll.

Leikmenn fæddir 2010-2011 (5. flokkur) kl. 9:00-11:00 (tilbúnir á sínu svæði kl. 8:45)
Leikmenn fæddir 2008-2009 (4. flokkur) kl. 11:30-13:30 (tilbúnir á sínu svæði kl. 11:15)
Leikmenn fæddir 2012-2013 (6. flokkur) kl. 14:30-16:30 (tilbúnir á sínu svæði kl. 14:15)

Leikmenn mæta í bakvið stúkuna við Kópavogsvöll. Við munum senda út hópaskiptingu áður en námskeiðið hefst og munu hóparnir bera nöfn leikmanna FC Barcelona (t.d. Robert Lewandowski hópurinn). Bakvið stúkuna verða svæði merkt leikmönnum FC Barcelona og mæta iðkendur á það svæði sem er merkt þeirra leikmanni (t.d. þeir sem eru í Robert Lewandowski hóp mæta á það svæði sem er merkt Robert Lewandowski).  Iðkendur munu svo fara með sínum þjálfurum út á völl.

Sjúkraþjálfari verður á öllum æfingum til að hægt sé að bregðast við fljótt og vel við ef leikmaður meiðist.

Ef þörf er á frekari upplýsingum, sendið okkur þá endilega póst á kai@knattspyrnuakademian.is

Hafðu samband

Endilega sendu okkur línu, við svörum eins fljótt og hægt er.

Not readable? Change text.

Sláðu inn leitarorð og ýttu á Enter