Núna styttist í Barcelona æfingabúðirnar á Íslandi.

Afhending búninga – 7. júní kl: 15-17 í stúkunni á Kópavogsvelli

Fimmtudaginn 7. júní verður búningaafhending kl: 15-17 og hvetjum við fólk til að vera tímanlega, þar sem aðsókn á námskeiðið er mjög góð og fá allir þátttakendur búningana sína þarna.

Æfingatímar

Æfingarnar fara fram 8. – 12. júní á æfingasvæði Breiðabliks við Kópavogsvöll.

Leikmenn fæddir 2007-2008 kl: 9.00-11.00 (tilbúnir á sínu svæði kl: 8.45)
Leikmenn fæddir 2005-2006 kl: 11.30-13.30 (tilbúnir á sínu svæði kl: 11.15)
Leikmenn fæddir 2002-2004 + aukahópur 2007-2008 kl: 14.30-16.30(tilbúnir á sínu svæði kl: 14.15)

Leikmenn mæta í bakvið stúkuna við Kópavogsvöll. Við munum senda út hópaskiptingu áður en námskeiðið hefst og munu hóparnir bera nöfn leikmanna FC Barcelona(t.d. Messi hópurinn). Bakvið stúkuna verða svæði merkt leikmönnum FC Barcelona og mæta iðkendur á það svæði sem er merkt þeirra leikmanni(t.d. þeir sem eru í Messi hóp mæta á það svæði sem er merkt Messi). Iðkendur munu svo fara með sínum þjálfurum út á völl.

Sjúkraþjálfari verður á öllum æfingum til að hægt sé að bregðast sem faglegast við ef leikmenn meiðast.

Æfingafatnaður og boltar                 

Allir iðkendur fá afhenta bolta á fyrstu æfingu og er mikilvægt að passa vel upp á sinn bolta á meðan námskeiðið stendur og mæta með hann á allar æfingar. Eins er miklvægt að iðkendur mæti í Barcelona æfingafatnaðinum á allar æfingar(leyfilegt er að vera í peysum eða buxum innanundir æfingafatnaðinum en ekki utanyfir).

Ef þörf er á frekari upplýsingum, sendið okkur þá endilega póst á saevar@ru.is

 

Hafðu samband

Endilega sendu okkur línu, við svörum eins fljótt og hægt er.

Not readable? Change text.

Sláðu inn leitarorð og ýttu á Enter